Velkomin á Kótelettan.is
Bæjar-, fjölskyldu- og tónlistarhátíðin Kótelettan verður haldin í 3. sinn á Selfossi 8. - 10. júní n.k. Hátíðin er í samstarfi við Eimskip, Pepsi Max, Tuborg, EB Kerfi og fjölda annara fyrirtækja. Síðustu ár hefur hátíðin einkennst af góðum grill ilm sem leggst yfir bæinn þegar bæjarbúar tendruðu grillin. Nú stefnum við á að gera enn betur með þessari stærstu grill- og tónlistarveislu Suðurlands.
Búist er við mikilli aðsókn gesta frá öllum landshlutum og skulum við taka vel á móti þeim og sýna þeim í þá matarkistu sem við Sunnlendingar búum saman að.
Barnadagskráin er frábær þetta árið þar sem margar af bestu barnastjörnum landsins ætla að skemmta yngstu kynslóðinni. Tónleikahaldið er heldur ekki af verri endanum en segja má að rjóminn af íslensku tónlistarlífi muni láta sjá sig á Kótelettunni.
Kynntu þér nánar um þá viðburði og afþreyingu sem verður í boði á Kótelettunni með því að smella á viðeigandi flipa hér að ofan og verið hjartanlega velkomin á Selfoss dagana 8. – 10. Júní.